|
Góðar síður til að skoða!
|
24.05.2006 11:09:07 / ellamunda
Já ég asnaðist til að kaupa miða til Stokkhólm í Svíþjóð frá
14-19 Júní og síðan erum við akkurat að fara í brúðkaup þá...
Þannig ef einhver langar að fara í ferð til Stokkhólm, frá
miðvikud. til mánud. í góða veðrið og fyrir ekki neitt,
þá á ég með 2 miða fyrir 10.000 kall stykkið,
náttúrulega fram og til baka 14-19 Júní.... Núna kosta sömu miðar
inná Iceland express með sömu vél og allt 54.000 saman í staðin
fyrir 20.000 
kv. Ella gella
»
06.02.2006 19:08:09 / ellamunda
Vitiði það, ég verð ekki eldi ef lagið hennar Silvíu okkar
verður ekki valið í keppnina, þetta er náttúrulega ein sú mesta
snilld sem ég hef heyrt
Þið sem hafið ekki heyrt lagið endilega kíkið á það:
http://www.flurl.com/uploaded/Eurovision_lagid_55040.html
Later, Ella
»
19.01.2006 18:58:16 / ellamunda
1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin/nn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en
ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um
þig?
»
16.01.2006 21:48:30 / ellamunda
»
03.01.2006 19:08:37 / ellamunda
Já ég hef ekki verið mjög dugleg að blogga yfir jóla hátíðarnar
en það verður breyting þar á... Já jólin voru bara ágæt svo sem, ég
lagðist 2 í veikindi reyndar en bara stutt í einu, annars
einkenndist þetta jólafrí bara að smá vinnu, mikilli bjórdrykkju,
kúri og svefni... Hef held ég sjaldan verið svona út hvíld í bara
mörg ár...
En já áramótin....! Þau voru þau bestu hingað til. Ég var heima
hjá Gulla og family um kvöldið, borðuðum snigla og hörpuskel í
forrétt, naut í aðalrétt og síðan var ís í eftirrétt... Bara
geggjað sko, fengum síðan fyrir skaup Hödda vin Gulla í heimsókn og
var hann með okkur þarna að horfa á leiðinlegasta skaup hingað
til...! Síðan var náttlega bara horft og skotið upp ragettum og
shit hvað litli strákurinn braust út úr honum Gulla mínum, hann var
eins og hundur hlaupandi fram og aftur með ragettur... En já fórum
svo til Tryggva og hans konu og vorum þar í party þangað til okkkur
datt allt í einu að fara niður í bæ kl. 4, þá fórum við á Rex það
var svo gaman að það var ekki eðlilegt, við dönsuðum eins og
vitleysingar og drukkum eins og enn verri vitleysingar, en áttuðum
okkur þegar kl. var orðin svona hálf átta og enn opið á Rex...
Þannig við fórum þá fljótlega heim, eða vorum komin heim kl. 9
fengum far nebblega og þurftum að bíða eftir því... En já þessi
áramót voru æði!!! Tvímælanlaust þau skemmtilegustu hingað
til... enda þau fyrstu með Gulla hehe of væmið
kannski???
En herðu komið gott í bili, ætla að fara troða í mig
»
27.12.2005 22:22:56 / ellamunda
Gleiðileg jól og farsælt komandi ár
hafiði það geggjað gott...
fer svo fljótlega að skrifa einhvað, það er víst nóg búið að
gera...
later,
Ella
»
14.12.2005 12:27:29 / ellamunda
Síðasta próf eftir 30
mín... vildi bara deila því með ykkur

»
06.12.2005 14:46:06 / ellamunda
»
30.11.2005 17:15:35 / ellamunda
Já svona er þetta, það koma líka leiðindarpartar í lífinu eins
og þessar helv#### prófatarnir... Byrja í prófunum núna
mánudaginn 5. des og er svo búinn 13... Maður verður allavega
guðslifandi feginn þegar þetta er búið.
En já ég gerði helvíti margt um helgina, fór á Herra Ísland á
Fimmtud. og var svo á djamminu báða dagana um helgina... Helvíti
gaman bara sko...
En vá verð að segja ykkur sögu um Herra Ísland gaurinn, það er
nefninlega mál með vexti að aðstandendur keppninar voru mjög
ósáttir að Herra Ísland, Hann Ólafur Geir hafi unnið... Bara
einfaldlega út af þeim fannst hann ekki verðugur... Þannig þau hafa
brugðið á það ráð að senda hann ekki fyrir okkar hönd út í heim í
hinar keppninar, ætla í staðinn að senda einhvern sem lenti neðar í
sæti... Þetta er náttúrulega eingöngu samt þeim að kenna að hafa
svona asnalegan dóm á keppninni, að láta hringja inn??? Hvurslags
vitleysa er það, sýnir eingöngu vinsældir í staðinn fyrir fegurð...
Það voru margir sem komust ekki í úrslit sem jafnvel voru
efni í hinn eina sanna Herra Ísland, eins og hann Arnar okkar
heheh nei segi svona, er ég lýsi allavega minni óánægju, en
er enn fremur hæst ánægð að þau hafi ákveðið að drulla yfir litla
Óla og láta hann sitja eftir með sárt ennið hérna á klakanum á
meðan einhver annar tekur hans sæti tíhíhí.
En ég fékk þessar fréttir frá einum keppandanum í keppninni, hans
nafn verður ekki gefið upp að svo stöddu,(getur reyndar alveg verið
að allir viti þetta hehehe )
En komið nóg í bili,
Over And Out
»
21.11.2005 16:38:39 / ellamunda
Haldiði að ella litla verði bara ekki
í fríi næstu helgi???
Jú þar heyrðu þið rétt, Hin ástkæri eigandi, hún Dabbý, tjáði mér
það á Laugardaginn að ég þyrfti að vinna allar helgar í Desember
mánuði, mér var smá brugðið fyrst, en ég sagðist þá vilja fá frí
næstu helgi í staðinn, og viti menn ég fékk það, en sjáiði til, ég
læt alltaf plata mig þannig að ég fái frí þegar enginn annar
ætlar að djamma, þið vitið, seinasta helgin í
mánuðinum??? Rétt fyrir próf? Ég get ekki ýmindað mér
að það verði einhvað að gerast í bænum... En þá geri ég bara
einhvað annað en að fara djamma? Eins og hmmmm, einhverjar
uppástungur?
En já annars var ég bara að vinna alla
helgina eins og vant er, var samt einhvað voða slöpp alla
helgina, mataði mig bara á verkjatöflum og ripped fueli og þá varð
ég góð En það var alveg óvenju mikið að gera um helgina, og
á Laugardeginum, var ástkær vinur minn svo fullur á barnum að ég
þurfti að senda hann heim og vera í bobba með starfsfólk það sem
eftir var nætur... En það reddaðist, Ella lagði bara einum
harðar á sig og allt gekk eins og í sögu
En ooohhh dísús ég hvet ykkur til að kíkja
inná síðuna hjá Ingvari vini mínum (www.blog.central.is/ingvarinn
), hann er í miðju ástar ævintýri núna, það er nebblega mál með
vexti að hann er að pæla í að flytja út til DK og ætlaði að vera
búin að kynnast einhverjum áður en hann fór út þannig hann ákvað
skrá sig á svona Einkamál dæmi og úr því er bara komið
ævintýri... Hann er að fara út til hans á Morgunn og mig
hlakkar svo til að vita hvað þessi ferð uppsker... ég vona nú
samt að ég sé ekki að fara missa hann út, en það væri kannski bara
gott því þá myndi ég ábyggilega koma og heimsækja hann oftar heldur
en ég hef gert meðan hann býr hér í bænum En það er svo gaman
einhvað svona spennandi dæmi þið skiljið heheh
En núna fer bara öll vikan í að fylgjast
með Herra Ísland gæjunum meiri segja Gulli ætlar að horfa með
mér, fyrst kynningarþættir mán. þri. og mið. og síðan sjálf kroppa
keppnin á fimmtud... me looking forward... tíhíhí... já allir að
kjósa fyrir Arnar í símakostningunni síminn fyrir hann er
900-3002, þetta er gæji sem
vel er varið í... Ég vona að allir kjósi
gæjann...
En ég er farinn að læra...
(verð að fara fá mér einhvern svona töff loka dæmi þið skiljið,
eins og ... æji finn ekkert)
»
14.11.2005 14:12:32 / ellamunda
Já helgin var svo sem allt í lagi, var
að vinna hana alla... Og ekki var það nú leiðinlegt þar því ekki
verri maður en Quentin Tarantino var á svæðinu... ALLA
NÓTTINA... og það er ekki nóg með það, nema ég var látin vera
einkaþjónninn þeirra næstum allt helvítis kvöldið... En það
var svo sem í lagi... heavy nice gaur, viðkunnalegur, ekki til
að hann sé merkilegur með sig... og bara mjög skemmtilegur
strákur... Einnig hef ég aldrei séð svona Dökk brún augu á ævi
minni í hvítum manni
En já annars náði ég í hann Gulla minn á
perunni bæði kvöldin þegar ég var búin að vinna... Bara fyndið
svona fullt fólk... Fórum svo í bíó í gær á Into The Blue... Og
ekki var ég fyrir vonbrigðum þar... Flottir kroppar, flott mynd..
allt sem að maður þarf....
en ætla aðeins að fara skella mér í tíma...
heyri í ykkur seinna
»
09.11.2005 16:11:25 / ellamunda
»
07.11.2005 19:13:53 / ellamunda
Jæja þá er þessi rosalega helgi búinn... ég er
ekki frá því að það sé enn smá lurkur í manni... Það voru
teknir Egilstaðir here i come á þetta... ákváðum að taka road
trip í staðinn fyrir að fara með flugi, út að það voru svo
margir sem beiluðu...
En næst tekur maður flug, maður er orðinn soltið þreyttur eftir að
sitja í bíl í 6 tíma
En já byrjaði kvöldið bara á að fara flott út að
borða, fórum svo heim á hótel að gera okkur til, byrjuðum svo að
opna kampavínið... Hver á eftir annarri var opnuð(flöskunni) og
ekki var langt þangað til að shampooið var á þrotum... En það var
svo sem allt í lagi, því Frikki okkar hafði farið þunnur í búðina
fyrr um daginn og ekkert spáð í hvað hann var að kaupa, en hann
keypti fyrir 6 manns, tvo kassa af bjór, 2 gin flöskur og eina
stóra vodka flösku... þetta hefði klárlega dugað fyrir heilt
party með 50 manns innanborðs...
En allavega þetta var svo gaman, við fórum á
einhvern bar á Reyðarfyrði og þar tók ég af trúbadornum mikerinn og
fór að syngja sjálf, Bjarni og Elvar fóru í danskeppni
við einhvern Pólverja, allir úr að ofan. Bara
fyndið... En þetta verður klárlega gert fljótlega aftur, en þá
ætla ég nú samt ekki að skilja eftir það mikilvægasta... Hann Gulla
minn... hehehe
»
02.11.2005 17:09:04 / ellamunda
Já það er víst einhver útborgunardagur
hjá mér í dag... En vitiði að það er ekkert gaman eftir að maður
verður eldri að eiga þennan dag því upp á móti kemur að maður
þarf að fara borga allskonar rugl... Þú veist hérna áður fyrr
þá fór maður beinustuleið í Kringluna eða Smárann og verslaði
eins og óður hestur, en nú þá reynir maður að fjarlægjast þessar
verslunarmiðstöðvar til að maður þurfi ekki að vera dreyma á
nóttinni um stígvélin sem maður sá út í glugga á Bossanova þið
skiljið...
Og óska þess að maður væri ennþá 16 til að geta bara keypt þau án
þess að hafa nokkuð samviskubit yfir því... DJÖ....
En annað ætlaði ég ekki að segja vildi bara
lýsa gremju minni hérna fyrir ykkur...
»
31.10.2005 15:26:09 / ellamunda
Já eins og ég er búin að koma hér að,
þá á ég afmæli nú von bráðar, eða nánar 8. Nóvember næstkomandi.
Í tilefni dagsins ætla ég bara að fá mér frí alla helgina næstu
og vitiði það þó það sé Mánudagur í dag er mér strax byrjað að
hlakka til því ég hef líka svolítið í
pokahorninu
Það er nefninlega þannig að vinirnir sem voru að
vinna á Rex þegar hann opnaði (gamla Rex liðið) ætlum að ferðast
til Egilstaða á Laugard. og heimsækja okkar glæsta vin Hann Frikka,
Hann er mesta æði í heimi. En byrjaði það þannig að upphaflega
átti þetta að vera Ég, Bjarni og Elvar, (Elvar á sko afmæli 5. Nóv,
þannig við erum að halda uppá okkar beggja ammæli) sem færu með
flugi allir með sitthvora sjampó flöskuna og við myndum bara skella
okkur á feitt fyllerí, gista á einu hótelinu sem Frikki á þarna og
mála bara bæjinn rauðann. En það eru víst nokkrir byrjaðir að
bætast í hópinn, þannig það verður þá Ég, Elvar, Bjarni, Bjarni
sjávarkjallara (Hann átti ammæli í gær, congrat), Snorri bróðir
hans Frikka og Salvör og erum við búin að fá vin okkar sem á 7
manna rellu að skutla okkur austur (ella flughrædda) og nú eru
skylirðin orðin að minnsta kosti 2 sjampó flöskur á mann... Þetta
breytist úr litlu ammælisboði í stóra veislu með geggjuðu fólki
innanborðs.. . En að sjálfsögðu fer maður út á lífið líka hérna í
bænum á Föstudaginn, Ég og Beta vorum að pæla í að fara út að borða
og taka Bryndísi gellu með út að borða og djamma því hún á einmitt
afmæli þarna 9. nóv. Allt morandi í Sporðdrekum í kringum
mig, enda er það klárlega flottasta stjörnumerkið... En já nóg með
það, á eftir að uppfæra ykkur Betur um sveitaferðina mína
En já helgin var svo sem ekkert uppá
10... Þegar ég kom út frá vinnunni á Lau. Þá var búið að
gjörsamlega þrykkja í bílinn minn annaðhvort með einhverju
barefli eða bara sparkað því ekki var þetta eftir annan bíl...
Löggumennirnir eru einhvað að tjékka á þessu til að ath.
hvort að einhverjar myndavélar hafa náð þessu, Ella er crazy núna
bara á því að tala um þetta 
En já ætla að fara gera einhvað...
P.s. Ég held ég
taki vinkonur mínar í Hux til fyrirmyndar og skelli smá jólaþema á.
Maður er komin í svo mikið jólastuð þegar maður kíkir út á
snjóinn...
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|